Face repair mini sett
kr. 6.800 - eða gerast áskrifandi og spara allt að 15%
Repair settið er frábært duo.
Andlits serum 10ml.
inniheldur 100% hreina Argan olíu sem er sérlega rík af E-vítamíni frá nátturunnar hendi og góðum fitusýrum. Olían endurnærir og hleypir nýju lífi í þreytta húð, dregur úr þrota og gefur henni djúpan raka sem gerir hana silki mjúka.Hefur góð áhrif á myndun collagen og elastín,sem heldur húðinni unglegri. Dregur úr litabreytingum, fínum línum og ótímabærri öldrun. Jafnar út pH gildi húðar sem hjálpar til við að koma jafnvægi á hormóna húð, feita og bólótta húð. Dekurolía fyrir andlitið, hálsinn og bringuna. Notið 4-5 dropa á andlit og háls. Berið olíuna á kvölds og morgna.
Ilmkjarnaolíur: Frankincense, Yarrow, Sandalwood, Rose, Rosewood
Turmeric serum 10ml.
Einstök formúla sem hefur náttúrulegan læknamátt fyrir húðina. Lækningamáttur Turmeriksins má rekja til virka efnisins curcumin sem hefur bólgu og bakteríueyðandi andoxunareiginleika sem hjálpa til við að vinna á hinum ýmsum húðvandamálum eins og örum, litarblettum, bólum, bakteríum í húð, útbrotum, exemi o.s.frv. Serumið hefur róandi áhrif á útbrot og roða í húð og virkar vel á Psoriasis. Hjápar til við að ná náttúrulegu heilbrigði og áferð, gefur djúpann raka, kemur jafnvægi á ph-gildi húðar og gerir hana sterkari.
Serumið er ríkt af A, B og E vítamín frá náttúrunnar hendi, steinefnum, joði og omega fitusýrum. Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum. Vinnur sérstaklega vel á opnum húðholum, öróttri húð, litablettum og sólarskemmdum, þurrkublettum, exemi og líflausri húð.
Notið serumið 2-3 í viku. Vinnur vel með Andlitsolíunni frá Benja.









Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.