Loading...

Heilbrigð húð – Hann

kr. 16.900 - eða gerast áskrifandi og spara allt að 15%

Allt sem þarf fyrir heilbrigða húð 

 

Skegg og andlitsolía 30ml.

Inniheldur 100% hreina Argan olíu sem er sérlega rík af E-vítamíni frá nátturunnar hendi og góðum fitusýrum. Olían endurnærir og hleypir nýju lífi í þreytta húð, dregur úr þrota og gefur henni djúpan raka sem gerir hana silki mjúka.Hefur góð áhrif á myndun collagen og elastín,sem heldur húðinni unglegri. Dregur úr litabreytingum, fínum línum og ótímabærri öldrun. Jafnar út pH gildi húðar sem hjálpar til við að koma jafnvægi á hormóna húð, feita og bólótta húð. Dekurolía fyrir andlitið, hálsinn og bringuna. Notið 4-5 dropa á andlit og háls. Berið olíuna á kvölds og morgna.

Ilmkjarnaolíur: Frankincense, Yarrow, Sandalwood, Rose, Rosewood

 

Næturtöfrar 30ml.

Andoxunarrík kröftug formúla sem inniheldur plöntubundið retinol og vinnur á öldrunareinkennum. Þetta áhrifaríka serum endurnýjar húðina, eykur raka, stinnir og þéttir húðina, örvar kollagen framleiðslu og dregur úr fínum línum og hrukkum. Dregur úr öldrunareinkennum, bólgumyndun og þrota. Serumið vinnur með hraða endurnýjun og stinnleika, náttúrulegan ljóma og heilbrigðan húðvef. Sannkallað botox í glasi. Serumið er ríkt af  vítamín A (rethinol) B (niacin) C (ascorbic acid) D og E frá náttúrunnar hendi. Serumið er ríkt af steinefnum og náttúrulegum omega fitusýrum.

Serumið entar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum. Vinnur sérstaklega vel á opnum húðholum, öróttri húð, litablettum og sólarskemmdum, þurrkublettum, exemi djúpum línum og líflausri húð.

Notið 4-6 dropa á andlit og háls fyrir nóttina.

Ilmkjarnaolíur: Frankincense

 

Augnserum 10ml.

Einstaklega gott til að vinna á þrota og vökvasöfnun, dökkum baugum, öldrunareinkennum og þurrki. Eykur raka, stinnir, þéttir og örvar kollagen framleiðslu. Serumið er ríkt af vítamín E, A og B frá náttúrunnar hendi, steinefnum,trefjum og omega fitusýrum. Berið í kringum augun kvöls og morgna og nuddið vel inn.

Ilmkjarnaolíur:
Frankincense, Lavender

 

Turmeric serum 10ml.

Einstök formúla sem hefur náttúrulegan læknamátt fyrir húðina. Lækningamáttur Turmeriksins má rekja til virka efnisins curcumin sem hefur bólgu og bakteríueyðandi andoxunareiginleika sem hjálpa til við að vinna á hinum ýmsum húðvandamálum eins og örum, litarblettum, bólum, bakteríum í húð, útbrotum, exemi o.s.frv. Serumið hefur róandi áhrif á útbrot og roða í húð og virkar vel á Psoriasis. Hjápar til við að ná náttúrulegu heilbrigði og áferð, gefur djúpann raka, kemur jafnvægi á ph-gildi húðar og gerir hana sterkari.

Serumið er ríkt af A, B og E vítamín frá náttúrunnar hendi, steinefnum, joði og omega fitusýrum. Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum. Vinnur sérstaklega vel á opnum húðholum, öróttri húð, litablettum og sólarskemmdum, þurrkublettum, exemi og líflausri húð.

Notið serumið 2-3 í viku. Vinnur vel með Andlitsolíunni frá Benja.

Veldu áskrift:

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Heilbrigð húð – Hann”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *